Keflavíkurhjartað var STÓRT þegar Keflavík lagði Hyeres-Toulon 82-78
Lengst af í leiknum gegn Hyeres Toulon í Bikarkeppni Evrópu fannst manni að við ofurefli væri að etja. Frönsku atvinnumennirnir virtust eiga svör við öllu sem Keflavík reyndi og létu boltann ganga ótrúlega vel í sókninni. Virtust alltaf geta fundi opið skotfæri og komust oft óáreittir upp að körfu okkar manna. Þeir leiddu samt bara með 4 stigum í hálfleik, 44-48, en eftir byrjun seinni hálfleiks benti fátt til annars en að gestirnir myndu hafa tiltölulega auðveldan sigur. Þeir voru komnir í 11 stiga forskot, 55-66, og fátt gaf til kynna að Keflavík ætti séns.
En smá sprettur í lok 3ja leikhluta kveikti vonir. Brotið var á Magnúsi í 3ja stiga skoti og hann setti öll vítin niður og minnkaði muninn í 5 stig fyrir upphaf 4ða leikhluta, 62-67. Arnar Freyr og Sverrir Þór höfðu leikið seinni hluta 3ja leikhluta og Guðjón þjálfari lét þá halda áfram í þeim fjórða. Strákarnir léku stórkostlega vörn og gáfu tóninn fyrir það sem á eftir kom. Liðið tók við sér og allt í einu var vörn Keflavíkur orðin eins og illvinnanlegt vígi, því Frakkarnir fóru að hiksta og gera mistök. Pressað var stíft út um allan völl og menn tóku að ýta frönsku risunum lengra frá körfunni.
Svo kom vendipunkturinn í leiknum. Magnús smellti niður þristi af löngu færi (og franski þjálfarinn trompaðist á bekknum) og í næstu vörn stal Nick boltanum á ævintýralegan hátt, kom honum á Arnar sem sendi áfram á Derrick sem var á harðahlaupum fram völlinn. Derrick hamraði boltann niður í hraðupphlaupinu og jafnaði leikinn í stöðunni 69-69. Í hönd fóru æsispennandi mínútur og var hjartsláttur áhorfenda afar ör. Falur kom aftur inná, ásamt Jonna, og stýrði liðinu á lokasprettinum. Derrick hafði enga hvíld fengið, en honum óx ásmegin í lokin og drengurinn fór á kostum. Hann hitti vel og veiddi villur, enda skoraði hann 30 stig í leiknum, þar af 19 í seinni hálfleik.
Þegar tvær mínútur lifðu leiks leiddu gestirnir 73-76, en Derrick fékk "3-point-play" (skoraði og fékk víti að auki) og jafnaði leikinn. Síðan skoraði hann aftur og svo fékk Falur víti. Það var gott að vita af Fali á vítalínunni, því hann er með 100% vítanýtingu bæði í Evrópukeppninni og á Íslandsmótinu. Reyndar lét hann áhorfendur bíða lengi eftir fyrra vítaskotinu því boltinn virtist ætla að dansa endalaust á hringnum áður en hann fór oní. Seinna vítið var öruggt. Þá var forystan orðin góð, 82-76. Frakkarnir skoruðu síðan tvö stig, en þá var bara ein sekúnda eftir og glæsilegur heimasigur, 82-78, var staðreynd.
Þessi sigur var hreint frábær, ekki er hægt að segja annað. Hann var mjög "ó-keflavískur" ef svo má segja, því ekki voru 3ja stiga skotin að detta (aðeins 7 oní úr 26 tilraunum, þar af var Falur með 0 af 6 :). Menn hafa oft séð Keflavík í gegnum árin byggja upp stórt forskot með mörgum bombum og látum, en nú var því ekki að heilsa. Nú var það varnarleikurinn og skynsemin sem reið baggamuninn. Vörnin í síðasta leikhluta var hreint stórkostleg, annað eins hefur varla sést. Stöðugt var pressa á boltanum og svo tóku okkar drengir að ýta þeirra mönnum lengra frá körfunni. Þetta orsakaði glundroða í annars vel spilandi liði Toulon og þeir hreinlega fóru á taugum. Nick, sem hafði verið frekar atkvæðalítill, tók vel á í vörninni, og stal nokkrum mikilvægum boltum, varði skot, og hirti fráköst.
Nivk kannar sína möguleika gegn frönsku risunum
Í hnotskurn má segja að Keflavíkurhjartað hafi slegið ört í síðasta leikhluta. Að snúa við leik sem þessum, gegn topp-atvinnumannaliði, er frábær árangur sem jafnast á við það besta sem Keflavík hefur gert í körfuboltanum.
Strákar, þið voruð frábærir og allir sem á bak við liðið standa, eru stoltir af ykkur!
Halldór átti frábæra innkomu og setti "feitan þrist" í lok fyrri hálfleiks. Arnar Freyr stóð sig ótrúlega vel og var, ásamt Sverri Þór, lykillinn að vörninni í lok leiksins. Sverrir stjórnaði leiknum líka vel. Derrick var samt maður leiksins, alveg ótrúlegt eintak, þessi drengur, leikur af 100% krafti allan tíman. Nick (16 stig) átti sína spretti, var frábær í vörninni í lokin, en hefði mátt láta meira að sér kveða í sókninni. Maggi átti frábæran leik (11 stig), þótt hann hafi oft skorað meira, hann var síógnandi og setti niður mikilvægustu körfu leiksins, ekki í fyrsta skiptið. Gunni Einars (10 stig) átti einnig mjög góðan leik, bæði í vörn og sókn. Falur (8 stig) er leiðtoginn okkar, þótt honum virðist ekki falla vel að hitta úr 3ja stiga skotum á móti þessu franska liði. Jonni var hreint út sagt frábær í vörninni, en lét lítið á sér bera í sókninni. Davíð kom ekki inná í þetta skiptið.
Guðjón þjálfari og liðsstjóri á stórt hrós skilið fyrir góða liðsstjórn. Innáskiptingarnar gengu upp og sömuleiðis breytingar á varnaraðferðum. Gott var fyrir Halldór að fá mínútur í fyrri hálfleik og einni var sniðugt að láta Arnar Freyr spreyta sig í seinni hálfleik. Að síðustu var skynsamlegt að láta Fal aftur inn á í lokin til að stýra liðinu til sigurs.
Franska liði er gríðarsterkt og þótt engar stjörnur prýði liðið (nema helst Jason Rowe, sem kom ekkert inn á, sökum meiðsla) eru þeir vel þjálfaðir og láta boltann ganga ótrúlega vel, ekki síst gegn svæðisvörn. Það má mikið af þeim læra. Stóru strákarnir þeirra eru öflugir, ekki síst númer 11, Kyle Milling, en hann stjórnaði vörn þeirra og var illviðráðanlegur. Eins eru skyttur þeirra góðar, ekki síst Legname (nr. 9) og Niviere (nr. 6). Siðan er Miller (nr. 15) góður undir körfunum og Asceric (38 ára Júggi, nr. 5) afar solið player.
En þeirra hæð og þeirra styrkur var ekki nóg til að leggja Keflavíkurhjartað að velli í Sláturhúsinu í kvöld!
Hér má sjá tölur úr leiknum (þegar þær koma inn).