Fréttir

Körfubolti | 21. mars 2005

Keflavíkurhraðlestin hægði aldrei á sér og sigraði ÍR 98-72 í kvöld

Það var að sjá strax í upphafi að Keflavíkingar voru ekki sáttir við að hafa tapað fyrsta leik í einvíginu við ÍR síðasta laugardag í Keflavík.  Fjölmargir stuðningsmenn Keflavíkur voru mættir í Hellinn þeirra ÍRinga löngu fyrir leik. Enda húsið orðið fullt löngu fyrir leik og ekki spurning að stuðningsmenn Keflavíkur ætluðu að gera það sem þeir gátu til að styðja sitt lið til að ná heimaleikjaréttinum á ný.

Um leikinn er það að segja að hann var eign okkar frá fyrstu sek. og bara varla hægt að skilja hvernig þetta lið gat tapað með 8 stigum á heimavelli. Leikmenn mættu grimmir í leikinn og börðust um hvern bolta strax frá upphafi og spiluðu frábæra vörn. Keflvíkingar tóku því ÍRinga á eigin bragði, þ.e.a.s að berjast um alla bolta og hvert frákast.

Staðan eftir fyrsta leikhluta var 14-23 og í hálfleik 28-52. Hreint frábær hálfleikur af okkar hálfu og frábær stemming á pöllunum. Maggi setti niður 4 þrista og allir leikmenn að spila vel.

Keflvíkingar slökuðu ekkert á eftir hlé, og áfram hélt munurinn að aukast og ÍRingar ráðlausir gegn frábæru liði Keflavíkinga. Allir leikmenn eiga hrós skilið fyrir leikinn í kvöld og liðsheildin sigraði í leiknum. Nick var frábær skoraði 29 stig og var með 11 fráköst, Tony var illviðráðalegur undir körfunni og skoraði þegar honum langaði og var með 22 stig.  Maggi fór í gang og setti niður 15 stig og öll úr þriggja stiga skotum og nýtting 62,5%.  Arnar var einnig að spila einn af sínum bestu leikjum skoraði 10 stig á 19 mínutum og stal 8 boltum. Sverrir var hreint stórkostlegur í vörn og skorði að auki 9 stig, og barðist um hvern lausan bolta á vellinum. Jonni og Elli spiluðu mjög góða vörn og létu finna vel fyrir sér. Gunni E. spilaði lítið í leiknum en setti niður einn þrist úr einni tilraun. 

Síðasta leikhluta var svo hægt að hvíla lykilmenn og Davíð, Dóri, Gunni Stef. og Jón Gauti kláruðu leikinn með sóma. Keflavíkurhraðlestinn hægði aldrei á sér alla leikinn og svona viljum við stuðningsmenn sjá liðið spila.

Stuðningsmenn Keflavíkur eru frábærir og þeir eiga stóra þátt í sigrinum í kvöld og þori ég að lofa því að ef þeir mæta svona vel áleiki og skapa svona frábæra stemmingu, þá klárum við ÍR!!  Áfram Keflavík