Fréttir

Körfubolti | 7. mars 2004

Keflavíkurkonur fá afhentan Deildarmeistarabikarinn á morgun

Eins og staðan er í dag er Keflavík handhafi allra titla sem keppt er um í kvennaboltanum. Sá nýjasti er Deildarmeistaratitillinn, en stúlkurnar tryggðu sér hann þegar nokkrar umferðir voru enn eftir af deildarkeppninni. Bikarinn verður afhentur að heimaleik stúlknanna gegn Njarðvík loknum á morgun. Sá leikur skiptir reyndar engu máli fyrir liðin, Njarðvík er “fast” í 5. sæti deildarinnar og Keflavík í því efsta, ef svo má segja. Engu að síður er mikilvægt fyrir Keflavík að halda áfram að bæta sinn leik því úrslitakeppnin er á næsta leiti. Þar mætum við Grindavík sem er líklega sterkasta kvennaliðið í dag fyrir utan Keflavík.