Keflavíkurkonur komnar í úrslit Hópbílabikars og karlarnir komnir í 16 liða úrslit Bikarkeppni KKÍ & Lýsingar
Leikur Keflavíkurstúlkna fyrr í dag gegn ÍS var frekar daufur framan af og mikið um mistök. Skorið var lágt og í háfleik var munurinn 10 stig, 34-24. Munurinn jókst síðan eftir því sem á seinni hálfleikinn leið og í fjórða hálfleik sprungu Stúdínur og Keflavík gekk á lagið og kláraði leikinn vandræðalaust með 27 stiga sigri, 68-41. Þá var svæðisvörnin þétt og gestirnir komust ekki að körfunni, þær skutu mikið að utan en hittu lítið. Keflavík hirti flest fráköstin (50 á móti 37) og keyrði upp hraðann. Og þrátt fyrir að hittnin hafi oft verið betri (17 af 47 2ja og 5 af 18 3ja, alls 22 af 65 eða 32%) var sigurinn vandræðalaus.
Erla Þorsteinsdóttir átti góðan leik að vanda, nýtti færin sín vel (5 af 6 skotum oní og 8 af 9 vítum), hún skoraði 18 stig og hirti 15 fráköst í leiknum. María Ben og Birna voru líka duglegar í fráköstunum, tóku báðar 9 slík. Birna og Erla Reynisdóttir skoruðu báðar 11 stig og Svava bætti við 10. Allar stúlkurnar fengu töluvert að speyta sig. Stúdínur komust ekkert áleiðis í þessum leik og var hittni þeirra afleit (16 skot oní af 71 eða aðeins um 23% hittni).
Þetta var góður sigur og nú bíða Keflavíkurstúlkur eftir mótherjum úrslitaleiksins, en hinn undanúrslitaleikurinn er á milli KR og Grindavíkur.
Keflavíkurpiltar heimsóttu Þrótt í Vogum í fyrsta sinn og unnu þar sigur eins og við var búist. Lokatölur voru 86-136 eftir að staðan hafði verið 41-71 í hálfleik.
B lið Keflavíkur beið lægri hlut fyrir HK í stórkostlegum leik :)