Keflavíkurkonur unnu SISU í Kaupmannahöfn í kvöld
Kvennalið Keflavíkur er nú statt í Kaupmannahöfn þar sem það leikur tvo æfingaleiki, gegn SISU og Hörsholm, og tekur síðan þátt í fjögurra liða móti á laugardag og sunnudag. Stúlkurnar flugu til Köben í morgun og komu sér fyrir á hóteli í miðbænum. Síðan var rölt í bæinn og svo mættu þær danska liðinu SISU um kvöldið.
Skemmst er frá því að segja að leikurinn gekk ljómandi vel hjá okkar stúlkum sem lönduðu 10 stiga sigri, 79-69. Þær beittu pressuvörn grimmt og náðu 13 stiga forskoti í fyrri hálfleik. Í þeim seinni minnkaði forskotið en þær náðu að halda sínu striki og unnu sannfærandi sigur.
Sverrir Þór þjálfari var að vonum ánægður með liðið og sagði að varnarleikurinn hefði gengið vel og að ungu stúlkurnar hefðu staðið sig vel, ekki síst í baráttunni um fráköstin. Á morgun verður leikið gegn Hörsholm.
Stig Keflavíkur skoruðu: Reshea 17, Anna María 16, María Ben 14, Marín 9, Halldóra 7, Bryndís 7, Rannveig 6 og Bára 3. Birna Valgarðsdóttir lék ekki með vegna meiðsla sem hún hlaut í æfingaleik gegn KR á dögunum. Óvíst er um þátttöku hennar í þeim leikjum sem framundan eru.