Keflavíkurkrakkar í Sixers Camp
9 hressir krakkar dvelja þessa dagana í körfuboltabúðum á vegum Philadelphia 76ers í Pocano fjallgarðinum í Pennsylvaníuríki. Æfingabúðirnar hófust sl. sunnudag og lýkur dvölinni ekki fyrr en föstudaginn 11. Júlí n.k., þannig að krakkarnir fá þarna gullið tækifæri til að bæta sig á öllum sviðum körfuboltans.
Efri röð: Eðvald, Siggi, Hrói, Gísli, Kristján og Eyjólfur Ben.
Fremri röð: Sara Lind, Lovísa og Erna.
Krakkarnir fyrir framan einn æfingasalinn
OK, allir að snúa baki í myndavélina!
Glæsilegar aðstæður hjá Sixers!
Einnig er frétt af krökkunum á Karfan.is