Fréttir

Körfubolti | 30. október 2005

Keflavíkurliðið komið heim

Keflavíkurliðið er komið heim eftir langt og strangt ferðalag frá Lettlandi. Ferðin gekk þó mjög vel, meira en hægt er að segja um ferðina frá Finnlandi til Lettlands. Strákarnir voru þreyttir eftir ferðalagið en farnir að hugsa um leikinn á morgun á móti KR. Hópurinn er mjög samstilltur, þótt við höfðum vonast eftir hagstæðari úrslitum. Það er samt meira en að segja það að vinna þessa leiki á útvöllum. En þeir eiga eftir að bíta vel frá sér í leikjunum sem eftir koma í Evrópukeppninni.

Þess má geta að á leiknum á morgun verður samningur við aðalstyrktaraðila Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur undirritaður. Landsbankin hefur stutt vel við bakið á Keflavíkurliðinu síðustu ár og ætlar ekkert að gefa eftir. Á morgun verða nýjar flottar auglýsingar líka komnar upp í húsinu.