Keflavíkurliðið var hvorki fugl né fiskur í undanúrslitum Hópbílakeppninnar og tapaði gegn Njarðvík, 78-84
Evrópukapparnir Gunni, Maggi og Jonni voru mikið hvíldir í leiknum gegn Njarðvík og aðrir leikmenn fengu það hlutverk að draga vagninn. Það gekk ágætlega framan af, en svo þegar aðalmennirnir komu í leikinn var greinilegt að þeir voru of þreyttir til að gera rósir. Því varð leikurinn sundurtættur og við náðum aldrei góðum takti, ef undanskildir eru örfáir ágætir sprettir. Staðan í hálfleik var 41-38 fyrir Kef, en seinni hálfleikur var slakur. Greinilegt að liðið var ekki að spila af eðlilegri getu og því urðum við að játa okkur sigraða gegn Njarðvíkingum sem voru sterkari á lokasprettinum.
Verst við leikinn var að Jonni meiddist á hné og því er óvíst um þátttöku hans í fyrsta útileiknum í Evrópukeppninni sem háður verður í Reims í Frakklandi á þriðjudaginn. Segjast verður að útlitið er ekki bjart.
Leikurinn var ekki í háum gæðaflokki og einhvern veginn náðist aldrei upp almennilegur kraftur í lið okkar. Sverrir var þó sprækur í vörninni og Jonni virkaði frískur þar til hann meiddist. Annars voru Nick og Tony bestu menn liðsins. Nick sá um fráköstin, tók alls 18 og Tony sá um stigaskorið, hann gerði 14 fyrstu stig liðsins (!) og alls 31 í leiknum.
Hjá okkur var fátt um fína drætti og greinilegt að erfiður leikur gegn Bakken sat í mannskapnum. En Njarðvík sigraði verðskuldað og þeirra besti maður var Friðrik Stefánsson í annars jöfnu liði. Keflvíkingar létu dómarana fara í skapið á sér og ber það vitni um einbeitingarleysi. Þó verður að segjast að dómararnir voru slakir, t.d. er hreint ótrúlegt hve mikið má berja á Tony undir körfunni án þess að dæmdar séu villur. En dómgæslan var ekki orsök tapsins, þar bar liðið alla ábyrgð.
Nú er bara að leggja sig og safna kröftum fyrir stórleikinn á þriðjudag. Það er ljóst að við þurfum amk einn sigur á útivelli í Evrópukeppninni til að tryggja okkur áfram og fyrsta tækifærið gefst á þriðjudaginn í Reims.
Við óskum Njarðvíkingum til hamingju með að vera komnir í úrslit Hópbílabikarsins.