Fréttir

Körfubolti | 17. desember 2003

Keflavíkurpiltar komnir til Madeira eyju

Eftir smá töf á flugvellinum í morgun flugu Keflavíkurdrengir til Madeira. Flugið er um einn og hálfur klukkutími og allt gekk vel. Fararstjórinn var afar ánægður með staðinn þegar Heimasíðan ræddi við hann í dag. Sagði staðinn fallegan, veðrið gott, útisundlaug við hótelið og allt í topp málum. Hann sagði seinna þegar komið var myrkur að Íslendingar væru örugglega ekki heimsmeistarar í jólaskreytingum, því í Funchal (sem er höfuðborg Madeira) eru allar götur mikið skreyttar og jólastemmingin í algleymingi, þrátt fyrir hitann og sólina. Annars sagði Birgir (þeas. fararstjórinn) að drengirnir væru kátir, en þreyttir eftir leikinn og myndu nú leggja áherslu á að jafna sig og gera sig klára fyrir stóra slaginn á morgun.