Fréttir

Körfubolti | 12. október 2005

Keflavíkurstelpur byrja á sigri

Keppni hófst í gær í Iceland Express-deild kvenna.  Keflavík mætti liði Ís og leik kvöldsins lauk með 16 stiga sigri Keflavíkur 61-77 í íþróttahúsi Kennaraháskóla Íslands.

Þetta var góður sigur en ekkert sérstakur leikur. Við náðum strax forskoti en svo gætti full mikils kæruleysis hjá okkur. Við pressuðum stíft á ÍS í kvöld en sóknarleikurinn var frekar dapur og við vorum oft að henda boltanum klaufalega frá okkur. Við eigum mikið inni,“ sagði Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Keflavíkurkvenna, í samtali á Vf.is
Allir 12 leikmenn liðsins spiluðu í leiknum en stighæstar voru, Birna V. 16 stig, María Ben 15 stig, Reshea 12 stig og Anna María 10 stig.