Keflavíkurstelpur mæta Njarðvík í kvöld kl 19.15
Nú verða allir stuðningsmenn að sameinast og mæta á leikinn í kvöld á móti Njarðvík. Keflavík þarf að ná sér á strik eftir að hafa verið í öldudal í síðustu leikjum. Keflavík hefur átt frábæru velgegni að fagna eins og allir vita, unnu allt sem í boði var á síðasta tímabil og voru búnar að vinna alla leiki sýna fyrir þessa taphrinu. Stelpurnar eru búnar að vera að vinna í að bæta það sem miður hefur farið í síðustu leikjum og komnar með nýjan leikmann eins og kemur fram í annari frétt. Nú er málið að mæta í húsið og hvetja stelpurnar til sigurðs og sjá um leið sjá nýja leikmannin þeirra, Alex Stewart. Áfram Keflavík
.