Körfubolti | 27. janúar 2005
Keflavíkurstelpur töpuðu sínum fyrsta leik á timabilinu í gær
Keflavík tapaði fyrsta leik í gær á tímabilinu. Leikurinn var á móti Grindavík á útivelli. Nýji leikmaðurinn hjá Keflavík Latoya Rose spilaði sinn fyrsta leik fyrir Keflavík og skoraði 17 stig. Skotnýtingin var ekki sem best sem sést best á stigaskorinu, en leikurinn endaði 61-48. Næsti leikur þeirra er á föstudaginn í 4 liða úrslitum Bikarkepni KKI og Lýsingar að Ásvöllum kl 19.30. Þar þurfa þær að gera betur en í gær, enda Haukar verið á mikilli siglingu síðustu daga. Hér eru tölur úr leiknum.
UMFG - Keflavík