Keflavíkurstúlkur áfram í bikarnum
Keflavíkurstúlkur halda áfram á sigurbraut og síðasta fórnarlamb þeirra var lið Haukastúlkna í 16-liða úrsllitum Powerade-bikarkepppni KKÍ í Schenkerhöllinni í Hafnarfirði. Leikurinn endaði 84-89 Keflavík í vil og eru stúlkurnar því komnar áfram í 8-liða úrslit en óvíst er hver mótherjinn verður.
Hjá Keflavík var það Jessica Ann Jenkins sem var stigahæst með 24 stig en á eftir henni komu, Bryndís Guðmundsdóttir með 19 stig, 4 fráköst og 4 stoðsendingar, Birna Valgarðsdóttir með 16 stig og Pálína Gunnlaugsdóttir 15 stig, 8 fráköst, 7 stoðsendingar og 5 stolna.