Fréttir

Körfubolti | 24. febrúar 2005

Keflavíkurstúlkur deildarmeistarar í kvöld

Keflavík vann ÍS í Keflavík í kvöld 71-68 í 1. deild kvenna.  Keflavík varð þar með deildarmeistari, því Grindavík tapaði fyrir Haukum á sama tíma í Grindavík. Tvær umferðir eru eftir en Keflavík er með 6 stiga forskot á Grindavík. Keflavík byrjaði leikinn mjög illa í kvöld og var staðan 11-31 eftir 1. leikhluta! Í öðrum leikhluta fóru hlutirnir að ganga aðeins betur og staðan 33-46 í háfleik. Í seinni hálfleik mætu stelpurnar ákveðnar til leiks og spiluðu góða vörn sem skilaði því að ÍS skoraði aðeins 22 stig í hálfleiknum. Alex Stewart skoraði síðustu 3 stig leiksins og tryggði Keflavík sigur í leiknum. Keflavík fær stórt prik fyrir að gefast ekki upp og hafa trú að geta klárað leikinn. Stigahæstar í kvöld voru þær Alex Stuwart með 23 stig, Anna María með 17 stig og María Ben 13 stig. Til hamingu Keflavík með deildarmeistaratitilinn.

 

 

Tölfræði úr leiknum.

Mynd af vf.is