Keflavíkurstúlkur eru Hópbílameistarar 2004 eftir öruggan 76-65 sigur gegn ÍS
Kvennaliði Keflavíkur helst vel á titlum, ef svo má segja. Þær hafa mikið að verja í ár, stúlkurnar, og fara ágætlega af stað. Í dag var fyrsti úrslitaleikur leiktíðarinnar, gegn ÍS í Hópbílakeppninni í DHL-höllinni í vesturbænum.
Leikurinn var sveiflukenndur til að byrja með. Keflavík komst í 18-10 eftir góðan sprett, en ÍS lokaði vörninni með góðri svæðisvörn og náði hægt og rólega undirtökum í leiknum. Í stöðunni 34-27 fyrir ÍS komst Keflavík aftur á skrið með góðum varnarleik og hraðupphlaupum og náði naumri forystu fyrir hálfleikinn, 39-37.
Seinni hálfleikur var síðan eign Keflavíkur. Okkar stúlkur náðu fjótt þægilegri forystu sem rokkaði frá 6 og upp í 15 stig allan tíman, án þess að veruleg hætta hafi skapast. Í lokin var munurinn 11 stig, 76-65 og Keflavík er Hópbílameistari kvenna 2004.
Annars var leikurinn langt frá því að vera sannfærandi af okkar hálfu, mikið var um mistök og varnarleikurinn linur miðað við það sem sést hefur til liðsins í vetur. En þegar vörnin varð aggressíf og hraðinn jókst þá komu sprettir sem á endanum byggðu upp forskotið og tryggðu okkur sigur.
María Ben og Anna María voru skotvissar og settu hvor sín 15 stigin. Bryndís og Birna voru einnig sprækar, þótt Birna hafi oft hitt betur. Reshea var hins vegar alveg heillum horfin í stigaskorun, þótt hún hafi staðið sig þokkalega í vörninni og átt nokkrar ótrúlegar sendingar. Heilt yfir var krafturinn í okkar leik minni en oft áður, og vörnin ekki hreyfanleg, samt var sigurinn aldrei í hættu.
Tölur úr leiknum birtast innan skamms.
Við óskum stúlkunum, þjálfara og aðstandendum til hamingju með bikarinn. Liðið okkar er öflugt og hefur alla burði til að verja alla þá titla sem prýða bikargeymslurnar í Sláturhúsinu. Glæsilegt lið.