Fréttir

Körfubolti | 19. desember 2003

Keflavíkurstúlkur hafa titil að verja á morgun í Hópbílabikarnum

Líkt og í fyrra mætast Keflavík og KR í úrslitum Hópbílabikarsins (sem þá hér reyndar Kjörísbikarinn) síðasta laugardag fyrir jól.  Keppnin er nú haldin í fjórða sinn og að þessu sinni verður leikið í Smáranum í Kópavogi eins og í fyrra.

Leikurinn hefst kl. 14:15. Dómarar leiksins verða Rögnvaldur Hreiðarsson og Erlingur Snær Erlingsson. Leikurinn verður sýndur beint á RÚV.

Á leið sinni í úrslitin sló Keflavík út lið ÍS, en Keflavík sat hjá í 8-liða úrslitum. KR sló hins vegar út Hauka og Grindavík á leið sinni í úrslitin.

Keflavík og KR hafa mæst tvívegis í 1. deild kvenna í vetur. Í fyrri leiknum sem fram fór 18. október í DHL-höllinni sigraði KR 79-69. Í síðari leiknum sem fram fór í Keflavík 24. nóvember sigraði Keflavík hins vegar 72-59.

Keflavík vann KR auðveldlega í fyrra, 80-54, og var það í fyrsta sinn sem Keflavík vann keppnina, þrátt fyrir að hafa leikið til úrslita öll árin. Ekkert félag hefur unnið keppnina oftar en einu sinni, en auk Keflavíkur hafa KR og Gindavíkur unnið einu sinni hvort félag.

Hér má sjá samantekt um keppnina.

Telja verður okkar stúlkur sigurstranglegar, þótt þær hafi verið frekar rokkandi í spilamennsku það sem af er vetri. Liðið er án efa sterkara á pappírnum og t.d. eru níu (já 9) Keflavíkurstúlkur í 20 manna (kvenna) landsliðshópi sem nýráðinn landsliðsþjálfari, Ívar Ásgrímsson, tilkynnti á dögunum. Aðeins ein KR-stúlka er í hópnum, Hildur Sigurðardóttir, en hún hefur kannski leikið allra kvenna best á þessari leiktíð. KR-liðið byggir mikið á Hildi og Katie Wolfe sem er nýkomin til liðsins. Þessar tvær bera liðið uppi og ef okkar stúlkur hafa góðar gætur á þeim, auk þess að keyra vel upp hraðann og leika grimma vörn, þá ættu þær að eiga alla möguleika á að verja titilinn frá í fyrra.