Fréttir

Keflavíkurstúlkur halda í Grindavík í kvöld
Karfa: Konur | 11. september 2013

Keflavíkurstúlkur halda í Grindavík í kvöld

Keflavíkurstúlkur mæta grönnum sínum í Grindavík í kvöld kl. 19.15 en leikurinn fer fram í Röstinni í Grindavík. Keflavíkurstúlkur töpuðu fyrsta leik sínum í keppninni gegn Val og þurfa því nauðsynlega á sigri að halda í kvöld. Porsche Landry er komin til landsins og verður spennandi að sjá hana í sínum fyrsta leik. Þá eru Grindavíkurstúlkur með nokkuð breytt lið en þær Pálína Gunnlaugsdóttir, María Ben Erlingsdóttir og Ingibjörg Jakobsdóttir eru allar komnar yfir í Grindavík ásamt hinum geðþekka og skemmtilega þjálfara Jóni Halldóri Eðvaldssyni.

Keflvíkingar eru hvattir til að fjölmenna í Röstina og styðja við stúlkurnar.