Fréttir

Körfubolti | 28. mars 2005

Keflavíkurstúlkur hefja titilvörnina á miðvikudag

Á miðvikudagskvöld kl. 19.15 kemur Rita Williams í sína fyrstu heimsókn til Keflavíkur. Ásamt meðspilurum sínum í Grindavíkurliðinu, mun þessi nýjasti liðsmaður þeirra reyna að halda sigurgöngu þeirra gangandi í úrslitakeppninni. Rita þessi skoraði tæplega helming stiga Grindvíkinga í undanúrslitunum gegn Haukum og setti m.a. niður 13 af 20 3ja stiga skotum, en það er hreint frábær hittni. Hún er frábær leikmaður og setja Grindvíkingar allt sitt traust á hana og ætla henni að sækja Íslandsmeistaratitilinn til Keflavíkur. Auk Ritu hefur Svandís leikið vel upp á síðkastið, einni Ólöf og Sólveig. Erlurnar hafa lítið látið að sér kveða.

Okkar stúlkur eiga að baki ansi skrautlega leiktíð. Eftir blússandi start fór allt í baklás þegar Reshea hvarf, en svo virtist sem sjálfstraustið hafi farið með henni til Bandaríkjanna, til skamms tíma a.m.k. Nokkrir tapleikir fylgdu en svo hefur liðið hægt og bítandi fundið fyrri styrk og er nú vel í stakk búið til að verja Íslandsmeistaratitilinn. Alexandria hefur leikið vel í stöðu leikstjórnanda, en mikið mæðir á henni, ekki síst þar sem Marín Rós Karlsdóttir er fjarverandi vegna meiðsla og hefur ekkert leikið um langt skeið.

Stigaskor Keflavíkurliðsins hefur dreifst nokkuð jafnt í vetur, en þær Birna, Anna María og Bryndís hafa verið iðnastar við kolann upp á síðkastið. Auk þeirra hafa Rannveig, Svava og María Ben leikið stór hlutverk. Bára hefur oft átt góðar innkomur, en fær erfitt hlutverk. Kristín Blöndal hefur fengið fleiri og fleiri mínútur og gæti reynsla hennar hjálpað til.

Ljóst er að fókusinn hjá Keflavík verður að vera á eigin leik í þessu einvígi. Vörnin verður að vera með allra besta móti og þær verða að vera sterkar í fráköstunum, en þar eru Grindjánar skæðir, ekki síst Svandís. Auðvitað verður að hanga í Ritu, en sama hversu góð hún er, einn leikmaður getur aldrei unnið gott lið. Sóknarleikur okkar kvenna hefur verið upp og ofan og vonandi smellur hann í úrslitaeinvíginu. Þær hafa oft reynt að keyra upp hraðann, en ekki alltaf ráðið við það og niðurstaðan hefur stundum verið að of margir sóknir hafa runnið út í sandinn, algerlega að óþörfu. Ef skynsemin og áræðnin verða hafðar að leiðarljósi eru möguleikar okkar góðir.

Eins og alltaf í svona baráttu, þá er sigur í fyrsta leik mikilvægur, með því er tónninn settur. Heimasíðan er þess fullviss að mikið baráttueinvígi sé í vændum og væntir þess að Keflvíkingar styðji vel við stúlkurnar í þessari baráttu við Ritu Williams & Co.

ÁFRAM KEFLAVÍK!