Fréttir

Keflavíkurstúlkur í bikarúrslit
Karfa: Konur | 26. janúar 2013

Keflavíkurstúlkur í bikarúrslit

Keflavíkurstúlkur voru rétt í þessu að tryggja sér farseðil í úrslitaleik Poweradebikarsins með stórkostlegum sigri á Snæfell á Stykkishólmi, 70-73. Keflavíkurstúlkur voru undir í byrjun leiks en með flottum fjórða leikhluta náðu þær frumkvæðinu í leiknum og tryggðu sér glæstan sigur. 

Stigahæst í liði Keflavíkur var Pálína Gunnlaugsdóttir með 23 stig en hún tók auk þess 9 fráköst og gaf 6 stoðsendingar.

Heimasíðan birtir viðtöl við stúlkurnar í kvöld eða á morgun.

Áfram Keflavík!!!