Fréttir

Karfa: Konur | 6. október 2010

Keflavíkurstúlkur í Ljónagryfjuna í kvöld

Keflavíkurstúlkur spila sinn fyrsta leik á tímabilinu í kvöld, en þá fara þær yfir lækinn í Ljónagryfjuna og spila við Njarðvíkurstúlkur. Sverrir Þór Sverrisson, fyrrverandi leikmaður Keflavíkur, er þar við stjórnvölinn og stefnir á að byggja upp sterkt lið á næstu árum. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og eru allir hvattir til að mæta og styðja við stelpurnar.