Fréttir

Karfa: Konur | 21. september 2010

Keflavíkurstúlkur í úrslit Lengjubikarsins

Keflavíkurstúlkur tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitum Lengjubikarsins þegar þær lögðu Hamarsstúlkur í Hveragerði, en lokatölur leiksins voru 65-75 fyrir Keflavík. Keflavíkurstúlkur náðu forystu á upphafsmínútum leiksins og héldu þeirri forystu út allan leikinn, en staðan í hálfleik var 28-37 fyrir Keflavík.

Jacqueline Adamshick átti góðan leik og skoraði 22 stig, ásamt því að taka 19 fráköst. Bryndís Guðmundsdóttir skoraði 20 stig og tók 12 fráköst. Birna Valgarðsdóttir skoraði 10 stig. Hjá Hamar var Jaleesa Butler atkvæðamest með 21 stig og 13 fráköst. Á eftir henni kom Slavica Dimovska með 17 stig.

KR-stúlkur unnu Haukastúlkur í kvöld 71-69 og verða því andstæðingar Keflavíkurstúlkna á sunnudaginn næstkomandi í Laugardalshöllinni.