Fréttir

Körfubolti | 10. janúar 2004

Keflavíkurstúlkur komnar í undanúrslit Bikarsins eftir sigur á Þór Akureyri

Það fór eins og flestir áttu von á, Keflavík gerði góða ferð norður yfir heiðar og lagði 2. deildar lið Þórs með 60 stigum, 109-49. Stúlkurnar lögðu af stað kl. 6 í morgun og héldu  síðan heim á leið að leik loknum. Á morgun mæta þær síðan ÍR-stúlkum í heimaleik í deildinni kl. 19.15.

Þau fjögur félög sem eiga lið í undanúrslitum kvenna eru Keflavík, Haukar, KR og Stúdentar. Athygli vekur að 2. deildarlið Hauka skuli hafa komist í undanúrslitin, en Haukar hafa innan sinna raða tvær af öflugustu körfuboltakonum landsins, þótt enn séu þær ungar að árum. Dregið verður um mótherja á mánudaginn, líkt og hjá körlunum.

Keflavík er eina félagið sem á bæði karla- og kvennalið í undanúrslitum Bikarkeppninnar.