Keflavíkurstúlkur komnar í úrslit
Keflavíkurstúlkur voru rétt í þessu að slá út Íslandsmeistara KR og eru þar af leiðandi komnar í úrslit Iceland Express deildar kvenna. Lokatölur leiksins voru 62-70.
Atkvæðamest hjá Keflavík var Marina Caran með 21 stig. Birna Valgarðsdóttir var með 14 stig. Einvígið endaði því 3-1 fyrir Keflavík og á morgun kemur það í ljós hvort mótherjar Keflavíkur verða Hamar eða Njarðvík.
Marina var með 21 stig í kvöld