Keflavíkurstúlkur mæta Val í TM-Höllinni á sunnudag
Leikur Keflavíkur og Vals í meistarakeppni KKÍ fer fram í TM-Höllinni sunnudaginn 6. október kl. 19.15. Allur aðgangur rennur í afrekssjóð KKÍ en þar sem leikurinn er á vegum KKÍ gilda árskort og hraðlestarkortin ekki á leikinn. Aðgangseyrir er 1500 kr. fyrir 16 ára og eldri en yngri frá frítt.
Í þessum leik mætast iðulega Íslands- og bikarmeistarar tímabilsins áður en þar sem Keflavík er handhafi beggja titlanna eru það Valsstúlkur sem taka þátt sem fulltrúar bikarleiksins.
Fólk er hvatt til að fjölmenna og hvetur heimasíða Keflavíkur fólk til að styðja vel við heimastúlkur.