Keflavíkurstúlkur sækja Val heim í kvöld
Keflavík heimsækir Valsstúlkur í Vodafonehöllina í kvöld í þriðju umferð Domino´s deildar kvenna. Leikurinn hefst kl. 19.15 en búast má við hörku leik. Keflavík hefur byrjað tímabilið vel og unnið báða sína leiki en Valsstúlkur eru með einn sigur og eitt tap.
Liðin mættust síðast í "meistari meistaranna" þar sem Keflavík hafði sigur. Stuðningsmenn eru hvattir til að fylgja stelpunum í höfuðborgina!