Keflavíkurstúlkur sigruðu KR-stúlkur
Keflavíkurstúlkur urðu í kvöld fyrsta liðið til að leggja KR-stúlkur að velli í Iceland Express-deild kvenna. Lokatölur voru 64-68 fyrir Keflavík. Því verr og miður var fréttaritari Keflavíkur ekki á leiknum og lætur hann þar með tölfræðina tala sínu máli. Hjá Keflavík var Birna Valgarðsdóttir með 19 stig, Bryndís Guðmundsdóttir með 17 og Kristi Smith með 16. Hjá KR var Signý Hermannsdóttir með 22 stig og Margrét Kara Sturludóttir með 14 stig.
Glæsilegur árangur hjá stelpunum og eru þær á blússandi siglingu þessa dagana með sjálfstraustið að vopni. Það er engin spurning í herbúðum Keflvíkinga að þetta muni halda áfram hjá báðum liðum og góðir hlutir muni gerast þegar líður á árið.
Áfram Keflavík!