Keflavíkurstúlkur taka á móti Haukum í kvöld
Domino´s deild kvenna fer af stað í kvöld þegar Keflavík tekur á móti Haukum í TM-Höllinni í kvöld kl. 19.15. Liðunum er spáð misjöfnu gengi í vetur samkvæmt spá þjálfara, fyrirliða og formanna deildarinnar en þar hefur Haukum verið raðað í 2. sætið en Keflavík í 5. sæti.
Þrátt fyrir að Keflavíkurstúlkur hafi orðið fyrir blóðtöku frá síðasta tímabili er ljóst að þær eru staðráðnar í að gera betur en umrædd spá segir til um og má gera ráð fyrir því að þær selji sig dýrt í kvöld. Ungar stúlkur sem ekki hafa leikið mikið fram að þessu munu fá tækifæri í vetur en þar að auki er liðið stútfullt af hæfileikaríkum leikmönnum sem hafa sannað sig meðal þeirra bestu. Það verður því spennandi að fylgjast með liðinu í vetur og hvetjum við stuðningsmenn Keflavíkur, nær og fjær, að flykkja sér á bakvið stúlkurnar.