Keflavíkurstúlkur taka á móti Val í kvöld
Keflavík tekur á móti Val í Domino´s deild kvenna í kvöld kl. 19.15. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi þess að Keflvíkingar fjölmenni á leikinn til að styðja stúlkurnar í vegferð þeirra að deildarmeistaratitlinum.
Hvetjum við því fólk til að fjölmenna. Sérstaklega eru stúlkur á öllum aldri hvattar til að kíkja á kynsystur sínar, hvort sem um er að ræða dætur, mæður, ömmur eða allt í senn!
Áfram Keflavík!