Keflavíkurstúlkur treysta stöðu sína á toppi deildarinnar með auðveldum sigri á ÍS, 75-47
Í annað skiptið á einni viku komu Stúdínur í heimsókn til Keflavíkur, fyrst í Bikarnum og svo nú í dag í 1. deild kvenna. Í dag, líkt og síðast, hafði Keflavík algera yfirburði og vann auðveldan sigur. Í dag endaði leikurinn 75-47 en fyrir viku voru úrslitin 76-38. Ótrúlegir yfirburðir okkar liðs og má hreinlega telja með ólíkindum að ÍS hafi unnið okkar stúlkur tvisvar fyrr í vetur og verið lengstum á toppi deildarinnar.
Eftir nokkrar mínútur var staðan orðin 12-2 fyrir Keflavík og aldrei myndaðist spenna í leiknum, til þess voru yfirburðirnir of miklir. Reyndar komu inn á milli kaflar þar sem okkar stúlkur slökuðu á í vörninni eða flýttu sér um í sókninni. Þá minnkaði forystan tímabundið, en svo færðist aukinn kraftur í leikinn og þá jókst forskotið að nýju. Í lokin var munurinn 28 stig.
Keflavíkurliðið lék allt ágætlega, þó frekar köflótt, ef svo má segja, stundum á flugi en stundum í hægagangi. Ekki kannski rétt að taka einstaka stúlkur út úr en þó má nefna Birnu sem var afar dugleg í vörn og sókn, skoraði mikið, 22 stig, og var síógnandi. Eins átti Marín skemmtilegan kafla og setti niður þrista. Erla Reynis er orðin aktívari í sóknarleiknum og keyrði oft inn og skaut úr ópnum færum og skoraði 11 stig. Gaman að sjá það, þar sem hún er betri skorari en hún hefur sýnt fram að þessu í vetur. Aðrir leikmenn stóðu fyrir sínu, en þó á liðið enn töluvert inni, því hæfileikarnir eru miklir.
Með þessum sigri hafa stúlkurnar náð efsta sætinu í deildinni, fjórum stigum á undan bæði KR og ÍS. ÍS-liðið hefur gefið verulega eftir og eins og staðan er í dag, þá verður KR að teljast okkar erfiðasti andstæðingur, en við mætum einmitt þeim í bikarúrslitunum þann 7. feb. næst komandi. En áður en að þeim leik kemur keppa stúlkurnar við Njarðvík næsta laugardag.