Keflvíkinga steinlágu fyrir ÍR
Keflvíkingar steinlágu fyrir ÍR á Reykjanes Cup mótinu í gær, en leikið var í Röstinni í Grindavík. Lokatölur voru 89-66 fyrir ÍR. Af öðrum leikjum, þá sigraði Snæfell Njarðvík 102-92 og Fjölnir sigraði Grindavík 101-98.
Í dag heldur mótið áfram og leikið verður í Toyota Höllinni. Allir eru hvattir til að mæta!
Föstudagur 3. september, Keflavík:
Kl. 17:00 Keflavík - Njarðvík
Kl. 19:00 Snæfell - Fjölnir
Kl. 21:00 Grindavík - ÍR