Keflvíkingar að standa sig vel með landsliðum
Mikil starfsemi er í gangi þetta sumarið hjá landsliðum Íslands í körfubolta. Margir muna eftir fræknum sigrum 3ja unglingalandsliða á Norðurlandamóti fyrr í sumar og sem stendur eða nýverið hafa keflvískir körfuboltamenn - og konur verið að standa sig vel fyrir Íslands hönd. Skoðum aðeins málið nánar:
Kvennalandslið Íslands vann sigur á Promotion Cup en það hefur ekki gerst í 8 ár. Anna María Sveinsdóttir lék afar vel fyrir landsliðið og var öflug í úrslitaleiknum sem var hennar 60. landsleikur. Birna Valgarðs lék einnig afar vel á mótinu og var stigahæst íslensku stúlknanna með um 16 stig á leik. Auk Önnu og Birnu lék Marín Rós með landsliðinu og stóð sig vel.
16 ára unglingalandslið kvenna (Norðurlandameistararnir) er sem stendur að keppa í B-deild Evrópukeppninnar í Eistlandi. Stúlkunum gengur vel og eru í toppbaráttunni, hafa unnið 6 af 7 leikjum þegar 2 leikir eru eftir. Okkar stúlkur standa sig afar vel, t.d. hefur María Ben Erlingsdóttir skorað um 19 stig á leik og Bryndís Guðmundsdóttir hefur skorað um 9 stig og tekið um 9 fráköst á leik. Auk þeirra leika með þessu sigursæla liði Guðrún Harpa Guðmundsdóttir, Bára Bragadóttir, Ragnheiður Theodórsdóttir og Hrönn Þorgrímsdóttir. Þessar stúlkur standa sig frábærlega.
16 ára unglingalandslið karla (sem líka eru Norðurlandameistarar) leikur einnig í B-deild Evrópukeppninnar um þessar mundir, en þeir leika í Brighton, Englandi. Í þessu liði leikur Keflvíkingurinn efnilegi Þröstur Jóhannsson.
Karlalandslið Íslands leikur nú æfingaleiki gegn Pólverjum. Pólverjar eru á pappírum mun sterkari en Íslendingar enda allir leikmenn þeirra atvinnumenn og þar af tveir sem leika í NBA. Fyrsti leikurinn var í DHL-höllinni á föstudag og þar unnu Pólverjar naumlega í slagsmálaleik, en Íslendingum tókst að leggja Pólverjana í dag á Stykkishólmi. Frábær árangur hjá Sigurði þjálfara og lærisveinum hans. Með landsliðinu nú leika þrír Keflvíkingar, þeir Magnús Gunnarsson, Arnar Freyr Jónsson og Fannar Ólafsson (sem reyndar er orðinn "Grikki"). Allir standa sig með sóma. Fyrir utan þessa þrjá þá eru Gunnar Einarsson og Jón N Hafsteinsson að óbreyttu í landsliðshópnum, en meiðsli o.fl. hafa sett strik í reikninginn hjá þeim.