Fréttir

Keflvíkingar áfram í bikarkeppni unglingaflokks
Karfa: Karlar | 26. febrúar 2014

Keflvíkingar áfram í bikarkeppni unglingaflokks

Keflavík sigraði Tindastól í gær 83-81 í bikarkeppni unglingaflokks drengja en liðin mættust á Sauðárkróki. Um var að ræða annan leik þessara liða í sömu umferð en endurtaka þurfti fyrri leikinn þar sem KKÍ fylgdi ekki reglum er varðaði niðurröðun dómara á leikinn. 

Leikurinn var æsispennandi allan tímann og var fjöldinn allur af fólki sem gerði sér ferð á leikinn. Keflvíkingar mæta að öllum líkindu Njarðvík í næstu umferð þar sem þegar hafði verið búið að draga Tindastól og Njarðvík saman áður en aga- og úrskurðarnefnd hafði úrskurðað um fyrrgreind brot á niðurröðun dómara.