Fréttir

Körfubolti | 12. desember 2004

Keflvíkingar eru komnir í 8-liða úrslit í Bikar karla og kvenna

Í dag léku Keflvíkingar í 16-liða úrslitum Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar. Í hádeginu hófst leikur Keflavík A og Keflavík B í kvennaflokki. Í B-liðinu voru stúlkur úr 9. og 10. flokki ásamt reynsluboltunum Möggu Stull og Svandísi Gylfadóttur. Þetta var ágæt reynsla fyrir ungu stúlkurnar og jafnframt létt æfing fyrir A-liðið sem hafði að vonum auðveldan sigur, 120-50.

Í átta liða úrslitum kvenna eru auk Keflavíkur, ÍS, Njarðvík, Grindavík, Haukar, Tindastóll, Breiðablik og Laugdælir. Átta liða úrslitin verða leikin 8. jan. n.k.

 

Karlaliðið fékk Hauka í heimsókn eftir langt ferðalag í síðustu viku. Menn vissu þó að hér var bikarleikur á ferðinni og því eins gott að standa sig. Það mátti líka sjá strax á fyrstu mínútum að Kefarar ætluðu sér áfram í bikarnum. Strax náði Keflavík góðri forystu með hröðum leik og um miðjan annan leikhluta var munurinn orðinn 18 stig í stöðunni 40-22. Haukar náðu þó að laga þessa stöðu og í hálfleik var forystan 10 stig, 48-38.

Seinni hálfleikur byrjaði rólega og munurinn minnkaði enn, fór niður í fimm stig, 48-43. En þá sagði Keflavík hingað og ekki lengra og hraðlestin komst á sporið. Það sem eftir lifði leiks var aðeins eitt lið á vellinum, ef svo má segja. Vörnin hertist og hraðinn jókst. Haukamenn misstu vonina og ljóst var í hvað stefndi. Keflavík skoraði 53 stig á móti 25 og leikurinn endaði 101-68. Sem sagt, afar öruggur sigur.

Allir leikmenn fengu að spreyta sig í leiknum og flestir áttu ágæta spretti inn á milli. En ekki reyndi mikið á liðið, því það verður að segjast eins og er að andstæðingarnir voru slakir. Annar Kaninn þeirra, John Weller, kom ekki við sögu í leiknum, hann er líklega meiddur þó hann hafi verið í keppnisgalla á bekknum. Hinn Kaninn var frekur á boltann og því varð sóknarleikurinn afar ómarkviss, nánast auðvelt fyrir Keflavíkurvörnina að eiga við.

Mikilvægum áfanga var náð með þessum sigri, nefnilega þátttaka í átta liða úrslitum. Þar eru auk Keflavíkur komin Njarðvík, Skallagrímur og Hamar/Selfoss. Fjórum viðureignum er ólokið en telja verður líklegt að þau félög sem bætast í hópinn verði Grindavík, Fjölnir, Höttur og svo annað hvort Breiðablik eða Ármann/Þróttur. Átta liða úrslitin verða leikinn sunnudaginn 9. jan. n.k.

En næst á dagskrá er deildarleikur gegn Njarðvík á þriðjudaginn. Sá leikur verður eflaust fjörugur því þar er toppbaráttan í algleymingi. Meira um það síðar . . .