Keflvíkingar fara í Garðabæ til að jafna
Keflvíkingar halda í Garðabæinn í kvöld til að freysta þess að jafna einvígið gegn Stjörnunni. Stjarnan vann fyrsta leik liðanna í TM-Höllinni og verða Keflvíkingar að sigra í kvöld til að ná heimavallaréttinum til baka. Leikurinn hefst kl. 19.15 og eru allir Keflvíkingar hvattir til að renna í Garðabæ og styðja við Keflvíkinga!