Keflvíkingar fara í Ljónagryfjuna á morgun
Á morgun er klassískur toppslagur á dagskránni þegar Keflavík sækir Njarðvík heim í Ljónagryfjuna. Eins og ávallt má búast við mikilli skemmtun þegar þessi félög mætast, en þar að auki er um sérlega mikilvægan "fjögurra stiga leik" að ræða í Intersportdeildinni. Njarðvík hefur leikið liða best í deildinni og trónir á toppnum með 16 stig eftir níu leiki. Keflavík er í fjórða sæti með 12 stig. Ef Njarðvík vinnur ná þeir þægilegu forskoti fyrir jólafríið og Keflavík dettur úr toppbaráttunni, amk. tímabundið, en ef Keflavík vinnur þá þéttist pakkinn á toppnum. Það er kunnara en frá þurfi að segja að Keflavík hefur haft fókusinn á Evrópukeppninni, en nú er hlé þar í mánuð og tveir topp leikir eftir í deildinni fram að jólafríi, fyrst gegn Njarðvík á morgun og síðan gegn Fjölni á fimmtudaginn. Það væri ánægjulegt ef liðið okkar næði hagstæðum úrslitum úr þessum leikjum upp á að vera við toppinn í deildinni.
Á morgun verður nýbyggingin við íþróttahúsið í Njarðvík formlega vígð og óskum við nágrönnum okkar til hamingju með glæsilega aðstöðu. Opnunarhátíð hefst kl. 17.30 og síðan hefst leikurinn kl. 19.40, en hann verður sýndur beint á Sýn.
Bæði lið eru vel skipuð og við skulum aðeins bera þau saman:
Í bakvarðastöðum hafa Njarðvíkingar Matt Sayman sem leikið hefur vel fyrir liðið í vetur. Hann hefur skorað flest stig liðsins í deildinni (17 að meðaltali) og gefið flestar stoðsendingar (9). Hefur góða yfirsýn og er duglegur. Auk hans er Brenton hálfgerður bakvörður, en hann hefur verið misjafn, stundum brilljant en stundum rólegri. Allir vita þó hvað hann getur gert, t.d. drævað að körfunni og dúndrað niður þristum. Brenton hefur skorað að meðaltali 15 stig í leik. Guðmundur Jónsson kemur oft inná og hefur stundum átt góða leiki gegn Keflavík. Einnig er Jóhann Ólafsson vaxandi, hann hefur skorað um 9 stig í leik.
Keflavík hefur einnig frækna bakvarðarsveit. Maggi Gunn hefur átt sitt besta tímabil í vetur og hefur leikið skrugguvel upp á síðkastið. Í deildinni hefur hann skorað rúm 10 stig, en um 20 stig að meðaltali í Evrópukeppninni. Hann hefur leikið bæði sem ás og tvistur og ferst hvoru tveggja vel úr hendi. Gunnar Einarsson hefur einnig verið sjóðandi, þótt aðeins hafi hann kólnað í síðustu viku. Hann hefur skorað um 15 stig í Evrópukeppninni en minna í deildinni. Arnar Freyr og Sverrir Þór hafa báðir leikið sem leikstjórnendur í vetur. Arnar er stöðugt ógnandi og hefur bætt sig sem skytta, og allir vita hvers Sverrir er megnugur, ekki síst í vörninni. Elentínus hefur staðið sig sérlega vel og nýtt þau tækifæri sem hann hefur fengið, hvort heldur sem bakvörður eða framherji.
Stóru mennirnir hjá Njarðvík eru helstir Friðrik, Páll og Anthony Lackey. Lackey er þó ekki beint stór maður því hann leitar mikið af skotum nánast alls staðar á vellinum. Þó er hann ágætis frákastari. Frikki og Palli eru kjölfesta liðsins, en báðir hafa átt gott tímabil. Palli var funheitur framan af hausti en kólnaði örlítið, en þá tók Friðrik við og hefur líklega verið besti maður liðsins síðustu vikurnar, t.d. í keppni hinna fjögurra fræknu í Hópbílabikarnum. Palli og Frikki hafa báðir skorað um 15 stig að meðaltali í deildinni. Egill Jónasson hefur átt spretti en kannski ekki verið stór faktor í liðinu, hann leikur oft um 10 mín í leik. Halldór Karlsson getur alltaf komið inná með mikilvægan neista.
Hjá okkur eru stóru mennirnir Tony, Nick og Jonni. Tony er heljarmenni að burðum þó ekki sé hann sérlega hávaxinn, en þeir Jonni og Nick eru grannir og liprir leikmenn. Nick er afar fjölhæfur og tekur yfirleitt virkan þátt í öllum leik liðsins. Jonni hefur átt nokkra frábæra leiki, en er stundum full hógvær í sóknarleiknum. Þeir Tony og Nick skora yfirleitt yfir 20 stig og Jonni í kringum 10. Þessir þrír taka oft bróðurpartinn af fráköstunum. Halldór kemur oftast inn sem fjórði stóri maðurinn, og má hann hiklaust vera óhræddari við að leita að eigin færum, því hann er hæfileikaríkur.
Bæði lið hafa ágæta breidd, ekki síst okkar lið, því menn eins og Hjörtur, Gunni Stef og Davíð eru allir góðir körfuboltamenn sem geta gert góða hluta þegar þeir fá tækifæri.
Í svona leikjum eins og á morgun er margt sem ráðið getur úrslitum. Ef annað hvort liðið er "í stuði" og neglir niður þristum í gríð og erg getur það magnað upp stemmingu. Eins geta villuvandræði haft mikið að segja, t.d. ef Friðrik eða Tony lenda í vandræðum þá veikist lið þeirra undir körfunni, ekki síst í vörninni. Einnig getur stemmingin og æsingur í varnarleiknum gert útslagið, því góður varnarleikur getur komið andstæðingunum úr jafnvægi.
Ef að Keflavík á að hafa sigur er mikilvægt að leikmenn séu ferskir og reiðubúnir í alvöru leik. Það þarf að hægja á Sayman og koma í veg fyrir að Brenton detti í stuð. Einnig er mikilvægt að láta Friðrik ekki fá boltann of nærri körfunni. Þetta eru hlutir sem auðvelt er að tala um . . . en kannski erfiðara að framkvæma. Í sókninni þurfa okkar menn að nýta hraðann og sækja stíft inn að körfunni, því þannig opnast fyrir skytturnar sem að sjálfsögðu verða í stuði . . . :)
Hvað svo sem gerist má telja víst að mikil skemmtun sé í vændum og vonandi sjáum við alvöru nágrannaslag þar sem spennan verður í hámarki, eins og vera ber.
Áfram Keflavík !