Keflvíkingar komnir í úrslit Lengjubikarsins
Þá er það ljóst að Keflvíkingar eru komnir í úrslit Lengjubikarsins eftir frækinn sigur á Snæfellsmönnum í kvöld. Þetta var hörkuleikur en Keflavíkurseiglan var öflug og svo fór að Keflvíkingar lönduðu góðum sigri 88-93. Jarryd Cole fór hamförum, en hann skoraði 36 stig og hirti 10 fráköst. Steven Gerard skoraði 26 stig og Charles Parker 12.
Úrslitaleikurinn verður háður á morgun gegn Grindavík og hefst leikurinn kl. 16:00. Nú eru allir Keflvíkingar hvattir til að mæta og styðja við strákana með þéttum hvatningarsöngvum.
Áfram Keflavík!
Jarryd Cole var öflugur í kvöld (mynd: karfan.is)