Fréttir

Körfubolti | 23. nóvember 2003

Keflvíkingar köstuðu frá sér Hópbílabikarnum

Í gær vöknuðu minningar um bikarleik kvennaliðsins gegn ÍS í Höllinni fyrra. Karlaliðið nánast endurtók þann leik og kastaði frá sér leik í síðasta leikhluta. Fimmtán stiga forskot varð að engu og Njarðvíkingar gengu á lagið. Þeir fundu blóðbragðið og sigruðu máttlausa Keflvíkinga. Með 19 ára pilt, Guðmund Jónsson, í fararbroddi vann Njarðvík síðasta leikhlutann 31-9 og leikinn 90-83. Við óskum Njarðvíkingum til hamingju með sigurinn og titilinn.

Njarðvík komst í 10-0 í byrjun. En þá tók við langur góður kafli hjá Keflavík. Liðið lék af hraða og krafti og tók Njarðvíkurliðið hreinlega í sundur. Gunnar og Maggi skelltu niður þristum og Falur keyrði upp hraðann. Þá var gaman að horfa á liðið. Staðan  breyttist í 29-19 fyrir Keflavík og síðan 49-35 í hálfleik. Keflavíkurliðið virkaði einfaldlega miklu sterkara.

Þriðji leikhlutinn var ágætur og foystan hélst í fimmtán stigum. En svo hrundi leikurinn og erfitt er að átta sig á ástæðum þess. Það skipti reyndar verulegu máli að bæði Derrick og Jonni voru komnir útaf með 5 villur og erfiðlega gekk að hirða fráköstin. Reyndar voru dæmdar 28 villur á Keflavík í leiknum en aðeins 15 á Njarðvík. Hitt er kannski öllu mikilvægara að Kefllvíkingar hreinlega hættu að leika hraðan leik og fóru að spila göngubolta, gerðu nákvæmlega það sem ekki má á móti Njarðvík. Það má ekki láta þá stilla upp vörn sinni, því hún er geysisterk. Það sást í fyrri hálfleik þegar hraðinn var í botni, þá héldu Njarðvíkingar ekki í við okkur, en um leið og hægðist á leiknum hætti Keflavík að spila körfubolta eins og Keflavík á að spila. Einngi urðum við of hægir í vörninni, það slaknaði verulega á henni og Njarðvíkingar óðu í góðum færum, inn í teig og fyrir utan.

En af hverju dó hraðinn? Erfitt að segja, kannski menn voru einfaldlega of þreyttir? Eða þá að þeir urðu kærulausir og héldu að leikurinn væri unninn og að ekki þyrfti að taka meira á? Hvað um það, skaðinn er skeður og vonandi læra menn af reynslunni. Keflavíkurliðið má aldrei hætta að keyra á móti liði eins og Njarðvík sem getur stoppað okkur í hægum leik. Eins má spyrja af hverju ekki var beitt pressuvörn en hún hefur jú virkað allra hluta best fyrir okkur?

Derrick og Gunnar Einarsson voru bestu menn Keflavíkur, en dýrt var að missa Derrick út af. Derrick skoraði 23 stig, hirti 10 fráköst og varði 5 skot. Hann barðist gríðarlega vel allann leikinn. Gunni var einnig sterkur, skoraði 17 stig og náði í 9 fráköst. Hann hefði þó mátt reyna meira í lokin. Nick (20 st. / 9 frák.) var ágætur meðan allt lék í lyndi og lék prýðilega vörn gegn Brenton, en var afar slakur á lokakaflanum, skotnýtingin léleg og áræðnin engin. Flestir voru góðir í fyrri hálfleik og slakir í lokin. Falur gerði of mikið af mistökum og Magnús hvarf. Jonni og Sverrir áttu ágætis spretti og m.a. hirti Sverrir 8 fráköst. En eftir að Derrick fór útaf þá vantaði allan kraft í sóknarleikinn. Halldór var ágætur í lokin en hefði átt að koma inn á í fyrri hálfleik og komast í takt við leikinn, ekki gott að þurfa að koma inn þegar leikurinn er á heljarþröm. Gunnar Stefánsson var á bekknum. Hjörtur meiddist strax í upphafi eins og betur er gert grein fyrir annars staðar.

Stutt er í alvöru stórleik, því Portúgalarnir frá Madeira koma í heimsókn á miðvikudag og leika í Bikarkeppni Evrópu. Þá duga enginn vettlingatök og menn verða að vera tilbúnir í 40 mínútna leik, ekki bara 30.

Hér má sjá tölur úr leiknum.