Keflvíkingar leita af virkum penna
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur óskar eftir áhugasömum einstaklingum, á öllum aldri, til að skrifa fréttir og taka viðtöl við leikmenn fyrir heimasíðu deildarinnar. Þá gæti umræddur einstaklingur haft öluvert sjálfstæði í vali á efni inn á heimasíðuna, umfram það sem myndi flokkast undir hefðbundið efni. Hvetjum við sérstaklega stúlkur til að ganga til liðs við okkur svo auka megi vægi frétta af Keflavíkurstúlkum, bæði þeim yngri og þeim eldri.
Helstu kröfurnar eru að viðkomandi sé áhugasamur um keflvískan körfubolta og hafi góð tök á íslensku.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir að senda tölvupóst á netfangið: saevar@keflavik.is