Fréttir

Karfa: Karlar | 5. september 2010

Keflvíkingar sigruðu Njarðvíkinga

Keflvíkingar sigruðu Njarðvíkinga í grannaslagnum á föstudagskvöldi Reykjanes Cup mótsins, en leikið var í Toyota Höllinni. Lokatölur leiksins voru 92-76. Ekki var að sjá á liðunum að um létt æfingamót væri að ræða, því bæði lið lögðu allt í sölurnar og var fórnað sér í alla bolta inni á vellinum. Keflvíkingar reyndust þó sterkari á lokasprettinum. Toyota Höllin er nýgengin í gegnum endurbætur og er húsið hið glæsilegasta. Fín aðstaða verður fyrir stuðningsmenn Keflvíkinga á komandi leiktíð.

Eftirfarandi voru úrslit föstudags:
 
Keflavík 92-76 Njarðvík
Fjölnir 112-95 Snæfell
Grindavík 85-75 ÍR
 
Úrslitaleikirnir fara fram í Ljónagryfjunni í Njarðvík á sunnudaginn.
 
14:00 Njarðvík-Grindavík (5.-6. sæti)
16:00 Keflavík-Snæfell (4.-3. sæti)
18:00 Fjölnir-ÍR (1.-2. sæti)