Keflvíkingar skotnir í kaf af Brenton og Brandon
Njarðvíkingar voru lengst af skrefinu á undan í hörkuleik fyrir fullu húsi í Ljónagryfjunni í kvöld. Þar fóru fremstir í flokki þeir Brenton Birmingham (26 stig) og Brandon Woudstra (32 stig, 8 þristar) sem drituðu niður skotum utan af velli mest allan leikinn. Njarðvík leiddi í hálfleik með sjö stigum 49-42 og munurinn dansaði í kringum fimm stig mestan seinni hálfleikinn. Reyndar náðu okkar menn að jafna og komast yfir, ekki síst fyrir harðfylgi Gunnars Einarssonar, í stöðunni 77-78, en þá hrönnuðust upp mistök og Njarðvík gekk á lagið og landaði sjö stiga sigri, 93-86.
Varnarleikur okkar manna var ekki nógu góður, því skytturnar tvær fengu allt of oft að skjóta óáreittar fyrir utan 3ja stiga línuna. Þó var pressan stundum ágæt og hjálpaði til við að vinna upp forskotið í fjórða leikhluta.
Fyrsti leikhluti var slakur og stemmingsleysi í liðinu. En með innkomu þjálfarans Fals Harðarsonar kveiknaði neisti í liðinu. Falur skoraði 14 stig í öðrum leikhluta og skaut okkur inn í leikinn aftur. Auk Fals áttu Gunnar Einarsson og Magnús Gunnarsson ágæta spretti og Davíð átti einnig góða innkomu í seinni hálfleik, sýndi áræðni og dug. Sverrir og Jonni börðust ágætlega en létu samt ekki mikið að sér kveða í sóknarleiknum.
Sverrir Þór í baráttu við Brenton (mynd fengin að láni hjá Víkurfréttum)
Derrick Allen var öflugur og skoraði mest, alls 21 stig, en hann var samt afar lánlítill í skotum sínum, því ansi mörg rötuðu ekki rétta leið, þótt hann væri nálægt körfunni. Annars er sá piltur geislandi af baráttugleði og leggur sig allan fram. Nick Bradford átti hins vegar dapran dag og virtust honum allar bjargir bannaðar, sérstaklega í sóknarleiknum. Nick skoraði 11 stig, Gunnar 13, Falur 16 og Magnús 12.
Stundum virtist takturinn detta úr sóknarleiknum en samt héldum við okkur inní leiknum mest allan tíman, þó of mörg mistök hafi á endanum kostað sigurinn. Helstu mistökin voru þó, heilt yfir, að taka ekki skyttur þeirra fastari tökum, enda skoraði Njarðvík 45 stig úr 3ja stiga skotum, þeir hittu úr 15 af 31, tæp 50% hittni sem er frábært.
Nú eru fjórir leikir liðnir og staða okkar liðs kannski ekki jafn góð og við höfðum vonast eftir. En nú styttist í Evrópukeppnina - 9 dagar! - og mikilvægt er að nota æfingarnar og þá leiki sem næstir eru til að sníða agnúana af leik liðsins. Við vitum að það býr miklu meira í liðinu en það sýndi í kvöld.