Fréttir

Körfubolti | 20. febrúar 2005

Keflvíkingar sprettu úr spori í seinni hálfleik og unnu 30 stiga sigur á Hamri/Selfossi

Eftir fyrri hálfleik í kvöld var aðeins fimm stiga munur á liðunum, 47-42, en einhvern veginn voru áhorfendur sammála um það í hléinu að Keflavíkurliðið væri miklu sterkara og að öruggur sigur myndi vinnast í kvöld. Enda kom það á daginn. Í seinni hálfleik tóku heimamenn öll völd á vellinum og léku grimma pressuvörn. Gestirnir virkuðu ráðvilltir og hræddir og eftirleikurinn var auðveldur. Allir sem einn áttu góðan sprett í vörninni og seinni hálfleikurinn vannst með miklum yfirburðum, 50-25, og lokastaðan var 97-67.

Öruggur sigur þar og nú má segja að miklar líkur séu á því að Keflavík endi í efsta sæti Intersport-deildarinnar, þó vissulega séu þrír erfiðir leikir eftir, fyrst á útivelli gegn Skallagrími, síðan heima gegn Njarðvík og loks útileikur gegn Fjölni. En í ljósi þess að Snæfell tapaði í kvöld gegn ÍR þá þarf Keflavík aðeins að vinna einn af þessum þremur leikjum til að lenda í efsta sætinu áður en alvaran hefst.

Nick Bradford átti skínandi leik í kvöld sem og flestir hans félagar. Sérstaklega verður þó að nefna Gunnar Stefánsson sem nýtti vel þær mínútur sem honum buðust. Hann smellti niður fjórum þristum í röð og sá til þess að munurinn hélt áfram að vaxa jafnvel þótt Kanarnir og aðrir lykilmenn væru hvíldir. Vonandi heldur Gunnar áfram á sömu braut í næstu leikjum. Annars var liðið frekar jafnt í kvöld og áberandi var að vörnin skóp sigurinn, skemmtilegt að sjá hve aktífur Maggi Gunn er í vörninni. Þó hann sé ekki sá sneggsti hefur hann mikið auga fyrir varnarleik og nýtur sín vel, ekki síst þegar hraðinn er mikill og mikið er um skiptingar.

Þegar þetta er skrifað er tölfræðin ekki kominn inn á kki.is en það gerist líklega á næstu mínútum. Hér er slóðin á leikvarpið.