Fréttir

Keflvíkingar taka á móti KR á fimmtudag
Karfa: Karlar | 17. október 2012

Keflvíkingar taka á móti KR á fimmtudag

Keflavík tekur á móti KR í Domino´s deild karla kl. 19.15 fimmtudaginn 18. október. Leikurinn er í Toyotahöllinni og má búast við hörðum slag. Bæði lið hafa hafið leiktíðina frekar illa en Keflavík hefur tapað báðum leikjum sínum í deildinni og KR, sem spáð  var titlinum, hefur unnið einn og tapað einum.

Keflvíkingar eru að sjálfsögðu hvattir til að fjölmenna á völlinn enda er ljóst að stuðningur áhorfenda getur skipt sköpum í leikjum sem þessum. Hið unga en efnilega lið Keflavíkur er sólgið í sinn fyrsta sigur í deildinni og mun án efa selja sig dýrt.

Eru stuðningsmennn Keflavíkur hvattir til að styðja vel við bakið á strákunum en skilja tuð og neikvæðni í garð þeirra og dómara leiksins eftir heima!

Áfram Keflavík!

Myndin sem fylgir fréttinni er fengið að láni af www.karfan.is en hana tók Ómar Örn Ragnarsson.