Keflvíkingar unnu sigur í fyrsta heimaleik
Keflvíkingar sigruðu lið Tindastóls með 92 stigum gegn 78 í Intersport-deildinni í körfuknattleik í kvöld.
Keflavíkurliðið sem var að leika sinn fyrsta heimaleik í deildinni náðu aldrei að sína sitt rétta andlit en unnu engu að síður nokkuð öruggan 14 stiga sigur.
Jafnræði var með liðunum í 1.leikhluta þó svo að heimamenn hafi ávalt verið skrefi á undan og höfðu 2 stiga forystu eftir leikhlutann þar sem Damon Johnson skoraði 9 stig. Í öðrum leikhluta virtist sem heimamenn ætluðu að valta yfir gestina þegar þeir náðu góðri rispu og náðu 11 stiga forskoti á 2ja mínútna kafla, en þá virtist sem leikmenn ætluðu bara að láta þetta koma af sjálfusér og áður en leikhlutinn var búin voru gestirnir búnir að minnka muninn í 2 stig, og gestirnir hreinlega völtuðu yfir heimamenn í fráköstum og þá sérstaklega sóknarfráköstum og hirtu 18 slík í fyrrihálfleiknum á meðan heimamenn tóku aðeins 14 varnarfráköst en heimamenn höfðu samt 6 stiga forystu í hálfleik.
Síðarihálfleikurinn fór svipað af stað og sá fyrri, heimamenn ávalt skrefi á undan og náðu ágætum rispum og komust í ágæta forystu sem þeir misstu síðan jafn harðan, en þegar líða fór á leikinn sigu heimamenn framúr og þó að munurinn hafi aldrei verið meira en 15 stig virtist sigurinn aldrei í hættu þó svo að stólarnir hafi náð að minnka muninn í 4 stig og það voru síðan heimamenn sem unnu sinn fyrsta sigur á leiktíðinni.
Damon Johnson var bestur heimamanna sog skoraði 34 stig og tók 10 fráköst, Kevin Grandberg átti ágæta spretti og skoraði 21 stig en tapaði of mörgum boltum. Sverrir Þór Sverrisson var duglegur að vanda og ef allir leikmenn Keflavíkurliðsins tækju hann til fyrirmyndar yrðu þeir ekki árennilegir í vetur því ekki vantar mannskapinn.
Tindastóls liðið var nokkuð jafnt, en Axel Kárason (Kára Maríusar) var mjög aberandi og þá sérstaklega í fráköstum en hann tók 18 fráköst þar af 10 sóknarfráköst.