Kemst Keflavík í höllina?
Keflavík mætir Grindavík í undanúrslitum Lýsingarbikar kvenna í kvöld og fer leikurinn fram í Grindavík. Keflavík sigraði Njarvík og Val á leið sinni í undanúrslit en Grindavík sigraði Hauka B og KR.
Keflavík komst í úrslit í Lýsingarbikarnum í fyrra en tapaði með minnsta mun, 77-78 fyrir Haukum í skemmtilegum leik.
Leikurinn hefst kl. 19.15 í kvöld og hvetjum við stuðningsmenn og konur liðsins að fjöllmenna á leikinn
.
Mynd úr undanúrslita leiknum í fyrra.