Kesha Watson leikur sinn fyrsta leik á morgun
Kesha Watson nýji leikmaður okkar leikur sinn fyrsta leik á morgun í Grindavík. Kesha er 24 ára leikstjórnandi og 173 cm. á hæð. Síðast lék hún í Þýskalandi með Oberhausen þar sem hún gerði 15 stig að meðaltali í leik og tók 4,1 frákast.
Kesha þykir sterkur varnarmaður og var m.a. valin leikmaður ársins WBCA kvennadeildinni í Bandaríkjunum leiktíðina 2—3-2004. Kesha kemur úr Oklahoma City háskólanum og er 173 sm að hæð.
Watson hefur einnig leikið í NWBL deildinni í Bandaríkjunum með Lubbock Hawks en það er næsta deild fyrir neðan WNBA deildina. Í NWBL deildinni gerði Kesha 9,7 stig í leik.
Kesha tekur sig vel út í Keflavíkurtreyju.
Iceland Express deild kvenna hefst á laugardaginn og sú nýbreytni er nú á fyrstu umferðinni að hún er öll spiluð á sama degi á sama stað. Þetta er gert í tilefni af Ári kvennakörfunnar í Evrópu en því er fagnað með allskyns viðburðum út um alla Evrópu í allan vetur.
Ísland verður engin undantekning og fyrsta umferð stelpnanna fer því öll fram í nýja og glæsilega parketinu í Grindavík. Opnunarleikurinn hefst klukkan 13.00 á laugardaginn og er milli Grindavíkur og nýliða Hamars sem spila þar sinn fyrsta leik í efstu deild kvenna.
Íslenskur kvennakörfubolti hefur tekið stór skref á undanförnu ári. Ísland átti bæði félagslið (Haukar) og landslið í fyrsta skipti í evrópukeppni auk þess sem bæði 16 ára og 18 ára liðin tóku þátt í evrópukeppni annað árið í röð. Íslandsmeistarar Hauka halda áfram uppi merkjum íslenska kvennakörfuboltans því stelpurnar eru á leiðinni í Evrópukeppnina annað árið í röð. Haukar urðu einmitt Powerade-meistarar á dögunum og hafa þegar unnið þrjá titla á tímabilinu sem er í raun að hefjast á laugardaginn. Haukar unnu einnig SISU-mótið, æfingamót með SISU og þremur bestu liðum Íslands og síðan Meistarakeppnina í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Leikirnir þrír eru spilaðir hver á fætur öðrum. Gestgjafar Grindavíkur vígja fyrst Hamarsstúlkur inn í efstu deild í opnunarleiknum sem hefst klukkan 13.00. Klukkan 15.00 spila síðan Haukar og ÍS sem hafa mætast þar þriðju helgina í röð en liðin mættust einnig í undanúrslitum Powerade-bikarsins og í meistarakeppninni. Lokaleikur dagsins er síðan á milli Keflavíkur og Breiðabliks en hann hefst klukkan 17.00.