Fréttir

Körfubolti | 2. febrúar 2005

Kíkt inn á æfingu hjá 1. flokk

Heimsíðan leit inn á æfingu hjá 1. flokk karla áðan. Æfingar hjá strákunum eru í Heiðarskóla á mánudögum og miðvikudögum kl 1450-1540. Mikið fjör er á æfingum hjá þeim, hlaupið og hamast allann tímann. Þjálfari strákana er enginn annar er Kristinn Óskarsson körfuboltadómari. Mikil gróska er í yngri flokka starfi Keflavíkur og nú stendur yfir undirbúningur fyrir Samkaupsmótið sem haldið er helgina 5-6 mars. 

Hverjir eru bestir...KEFLAVÍK!!