Kjörísinn: Af hverju mætast hin fjögur fræknu í Keflavík?
Töluverð umræða hefur átt sér stað um leikstað hinna fjögurra fræknu í úrslitum Kjörískeppninar og sýnist sitt hverjum. Reglugerðin um keppnina segir að leikið skuli á hlutlausum velli, helst í Laugardalshöll, nema ef þátttakandi félög komi sér saman um annað. Og akkúrat það hefur gerst, þátttakandi félög hafa komið sér saman um að í ár skuli hin fjögur fræknu mætast í Keflavík. En af hverju?
Fyrst er ákveðið hvenær keppnin skuli haldin og þá er tekið mið af Intersportkeppninni, Bikarkeppni KKÍ o.fl. Þegar það liggur fyrir hefst leitin að heppilegum leikstað. Laugardalshöllin er upptekin umrædda helgi og kemur því ekki til greina. Þar fyrir utan má velta því upp, hvort Laugardalshöllin sé endilega heppilegasti leikstaðurinn, burt séð frá því hverju reglugerðin gerir ráð fyrir.
Mikilvægt er að Kjörískeppnin fái sérstöðu í íslensku körfuboltaumhverfi. Í því sambandi er lykilatriði að greina hana frá Bikarkeppninni, en á því hefur örlað undanfarin ár að sumir hafa ruglað þessum keppnum saman. Vera má að Laugardalshöllin eigi að “tilheyra” bikarúrslitunum og leita eigi annarra leiða fyrir Kjörísinn. Auk þess er áhorfendafjöldinn kannski ekki nægur til að fylla Höllina, en um 800-1000 manns hafa mætt á leikina, sem er kannski í það minnsta fyrir Höllina.
Nú, hvað með aðra leikstaði? Þegar hugað er að leikstað snemma hausts er ómögulegt að segja til um hvaða félög munu vinna sér rétt til þátttöku, þannig að úr vöndu er að ráða. Smárinn hefur hýst keppnina undanfarin ár, en ekki er fyrirfram pottþétt að Blikar taki ekki þátt, eða hvað? Ásvellir eru glæsilegt hús, en sama er uppi á teningnum þar, hver veit hvort Haukar taki þátt? Og svo má lengi telja.
Því er í raun ekki hægt að finna “hlutlausa” leikstaði fyrr en ljóst er hvaða fjögur lið taka þátt. Og skoðum möguleikana. Það hefði hugsanlega mátt leika í Njarðvík, í Valsheimili, í Seljaskóla, í Hveragerði, Borgarnesi, á Akureyri o.s.frv. (Smárinn var upptekinn). En huga þarf að fleiru en hlutleysinu.
Það þarf að spyrja hvað kemur best úr fjárhagslega? Hvar er hægt að treysta á góða framkvæmd? Hvar fer vel um áhorfendur? Hvar er líklegt að flestir áhorfendur komi? Og fleiri spurningum þarf að svara.
Þegar öllu var á botninn hvolft í þetta skiptið voru forráðamenn þátttakandi félaga sammála um að Keflavík væri prýðilegur kostur og að keppni hinna fjögurra fræknu væri best borgið í Keflavík þetta árið. Aðeins einn ókostur fylgir Keflavík, jú, þetta er heimavöllur eins liðsins og getur veitt því ákveðið forskot. En kostirnir voru fleiri og því var þetta niðurstaðan. Samhljóða, nota bene. (Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu fer líka alltaf fram á heimavelli einhvers, ekki satt?).
Við efumst ekki um að Kjörísinn muni bragðast vel í Keflavík þetta árið. Keppnin hefur verið að ávinna sér sess á undanförnum árum og leikirnir hafa verið stórskemmtilegir. Við teljum pottþétt að áhorfendur muni skemmta sér konunglega að Sunnubraut föstudaginn og laugardaginn 22. og 23. nóvember.
Og til þess er jú leikurinn gerður.