Konur á Landsmót
Misskilnings gætti hjá okkur körfufólki í Keflavík, með að ekki yrði kvennakeppni á Landsmótinu. Okkur skilst reyndar að þetta sé í fyrsta sinn sem kvenfólkið fær að keppa í körfuknattleik.
Einhver sá greinina hér fyrr á vefsíðunni og lét forráðamenn Keflavíkur vita á síðustu stundu. Við stukkum til og púsluðum saman kvennaliði og skráðum þær til keppni. Ekki mátti muna miklu því skráningartíma lauk nokkrum klst. seinna. En það tókst, og 9 konur eru því á leið með körlunum norður. Eins og okkar er von og vísa stefnum við að sjálfsögðu að koma heim með báða titlana í farteskinu.
Nánar um liðskipan Keflavíkurliðanna seinna.