Fréttir

Körfubolti | 19. október 2004

Konurnar unnu öruggan útisigur á ÍS, 79-65

Góð byrjun gegn sterkum Stúdínum lagði grunninn að öruggum sigri Keflavíkustúlkna í kvöld. Eftir fyrsta leikhluta var munurinn orðinn 12 stig, 16-28, og sá munur hélst að miklu leyti út leikinn. Hann varð reyndar 19 stig í hálfleik, 30-49, en endaði í 15 stigum. 65-79. Góður útisigur og gott veganesti fyrir framhaldið.

Það var hin síunga Anna María Sveinsdóttir sem var drottning kvöldsins, því hún gerði hvorki fleiri né færri en 30 stig í leiknum og var algerlega óstöðvandi, hitti m.a. úr 13 af 20 skotum sínum, þar af 2 af 3 þriggja. Aldeilis frábær leikur hjá henni. Reshea átti einnig góðan leik, 18 stig, 9 fráköst, 8 stoðsendingar og 6 stolnir boltar segja sína sögu. Sú þriðja sem skoraði yfir 10 stig var María Ben Erlingsdóttir sem setti 13. Ágætlega gekk að ráða við stóru stelpurnar í ÍS og var jafnræði í fráköstum í leiknum. Hins vegar gekk vel hjá okkar stúlkum að sækja að körfunni og komast á vítalínuna. Þær fengu 15 víti og nýttu 13 þeirra, eða 87% sem er sérdeilis gott. ÍS fékk hins vegar aðeins 6 víti og nýtti 4, en samt var jafnræði í villunum, bæði lið fengu dæmdar á sig 11 villur sem telst frekar rólegt á þeim vettvanginum.

Annars má sjá tölur úr leiknum hér.