Fréttir

Körfubolti | 30. september 2004

Körfuboltahreyfingin styður MND félagið á Íslandi

Undanfarin átta ár hefur keppnin um titilinn Meistari Meistaranna verið um leið svokallaður Góðgerðarleikur. Með því móti vill körfuboltahreyfingin láta gott af sér leiða og styrkja góð málefni. Í tengslum við leikinn fer fram söfnun á styrktaraðilum í leikskrá og rennur það fé til góðgerðarmálefnis, auk hagnaðar af miðasölu.

Þetta árið varð fyrir valinu MND félagið á Íslandi, en það er félag fólks með hreyfitaugahrörnun sem heitir á ensku Motor Nourone Disease og dregur þaðan skammstöfun sína, MND. MND er banvænn sjúkdómur sem ágerist venjulega hratt og herjar á hreyfitaugar líkamans sem flytja boð til vöðvanna. Af honum leiðir máttleysi og lömun í handleggjum, fótleggjum, munni, hálsi o.s.fv. Að lokum er um algera lömun að ræða. Vitsmunalegur styrkur helst þó óskaddaður. Líftími sjúklinga eftir að þeir fá sjúkdóminn er frá 1 -6 ár en sumir lifa lengur. Talað er um að 10% geti lifað upp undir 10 ár. Á Íslandi eru á hverjum tíma 15-20 manns með MND. Á hverju ári greinast u.þ.b. 5 manns með MND.

Ekki er vitað um orsök sjúkdómsins. Það er eitthvað sem veldur því að boð komast ekki á milli hreyfitaugafruma og vöðvinn svarar ekki því sem hugurinn vill. Hreyfitaugafrumurnar visna og deyja. Vegna hreyfingarleysis rýrna vöðvarnir. Mismunandi er hvernig sjúkdómsferlið er hjá fólki, hjá sumum byrjar sjúkdómurinn í taugum sem stjórna fótleggjum, hjá öðrum í taugum sem stjórna handleggjum og hjá enn öðrum byrjar hann í vöðvum sem stjórna öndun, kyngingu og tali. Sjúkdómurinn herjar á vöðva sem lúta viljastýrðum hreyfingur, þ.e.a.s. ekki vöðva eins og hjarta og önnur líffæri sem starfa óviljastýrt. Í mannslíkamanum eru ótal vöðvar og hefur hver og einn sitt hlutverk.

Fyrstu vísbendingar um sjúkdóminn er oftast máttleysi í útlim, kannski einum fingri eða fæti. Fleiri og fleiri vöðvar verða svo fyrir barðinu á sjúkdómnum.

Félag MND sjúklinga var stofnað 20. febrúar 1993 og er því rúmlega 12 ára. Það voru nokkrir sjúklingar sem stóðu að stofnun félagsins, þau Sigríður Eyjólfsdóttir, Jóna Alla Axelsdóttir og Rafn Jónsson. Rafn Jónsson var mikill tónlistarmaður eins og alþjóð veit, og einnig mikill körfuboltaáhugamaður og dyggur stuðningsmaður KFÍ.

Textinn hér að ofan er fenginn af heimasíðu MND félagsins, http://www.mnd.is.

Heimasíðan vill hvetja körfuboltastuðningsmenn til að slá tvær flugur í einu höggi á sunnudaginn, horfa á skemmtilegan og spennandi körfubolta og styrkja gott málefni.